Hjálpsemin borgar sig ekki

Það er alltaf verið að tala um að hjálpa náunganum og svona, en það er greinilegt að maður ætti ekkert að vera að því. Svona lítur þetta út fyrir mér: Maður fer til útlanda til að keyra, ákveður að selja bílinn sinn, fær gistingu á sveitabæ á meðan hann finnur kaupanda, vinnur fyrir mat sínum og gistingu (sem er fullkomnlega eðlilegt að mínu mati), er handtekinn fyrir það og hent í fangelsi þar sem hann má gjöra svo vel að sofa á hörðu og óþægilegu rúmi en hefði sennilega alveg eins getað sofið á gólfinu, það olli honum verjkum og var honum samt neitað um verkjalyf og honum var einnig neitað um níkótín þó hann hafi beðið um það. Það er, að mínu mati, skítameðferð sem er ekki neinum bjóðandi! Ég held að það sé sennilega bara best að halda sig fyrir sjálfan sig og vera ekkert að hjálpa öðrum. Manni er allavega ekki hent í fangelsi fyrir það.
mbl.is Í fangelsi fyrir hjálpsemina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ætli það skipti nokkru máli hvernig er greitt fyrir vinnu þegar maður hefur ekki atvinnuleyfi?  En hvað um það, það er víst engin ástæða til að fara illa með grey kallinn... þó ég vorkenni honum reyndar ekki neitt að fá ekki að reykja, veit ekki til þess að nikótín sé hluti af mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

...désú (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 10:55

2 Smámynd: Kristján

Það er kannski rétt hjá þér, en mér finnst samt sem áður stórfurðulegt að henda karlinum í fangelsi fyrir að hjálpa til í staðinn fyrir gistingu og fæði. Ég vorkenni honum vegna tóbaksskortsins, en það stafar kannski af því að ég nota bæði munntóbak og reyktóbak og veit því hvernig það er að fá ekki sitt nikótín í langan tíma

Kristján, 13.8.2008 kl. 11:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vangaveltur geðveika mannsins

Höfundur

Kristján
Kristján
Höfundur er ungur maður með sterkar skoðanir og mun nota þennan vettvang til að tjá þær.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband